Stemningin á hlutabréfamörkuðum Evrópu er jákvæð í dag ef marka má þróun helstu vísitalna og heldur jákvæð þróun gærdagsins því áfram. Hvar sem litið er eru tölur grænar og ber þar að sjálfsögðu hæst stærstu kauphallirnar, þær í London, París og Frankfurt. Þar hafa vísitölur alls staðar hækkað um eða yfir 1%; í London um 0,8%, í París um 1% og í Frankfurt um 1,4%.