Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 1,06% í dag og endaði í 1,842.64 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 2,01% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Marel, eða um 2,48% í viðskiptum sem hljóða upp á 692 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 268,5 krónum á hlut. Gengi bréfa Haga hækkaði þá einnig, eða um 2,13% í rúmlega 272 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 48 krónum.

Ekki varð nein lækkun á gengi hlutabréfa í dag. Hlutabréfaverð fór þá einnig hækkandi á heimsmarkaðnum.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 2 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var rúmega 730 milljónir króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 1,3% í dag í 2,4 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,2% í dag í 2,2 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,3% í 1,6 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 0,5 milljarða króna viðskiptum.