Vísitala framleiðsluverðs hefur lækkað um 5,3% ef miðað er við janúar árið 2016. Þar af hefur verið sjávarafurða lækkað um 8% og annar iðnaður lækkað um 12,2%. „Sé horft til þess hvort afurðirnar eru fluttar út eða seldar innanlands hafa útfluttar afurðir lækkað um 6,0% á einu ári, en verð afurða seldra innanlands hefur lækkað um 3,5%,“ segir í frétt Hagstofu Íslands.

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 0,8% milli desember 2016 og janúar 2017. Afurðir stóriðju hækkuðu um 1,5% en annar iðnaður lækkaði um 2,%. Matvæli lækkuðu um 0,3% og sjávarafurðir hækkuðu um 2,9%