Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fer fram í dag. Um 20 bjóða sig fram í hin ýmsu sæti á lista. Þar af eru 4 sem bjóða sig fram í oddvitasætið. Þau eru:
- Halldór Halldórsson
- Hildur Sverrisdóttir
- Júlíus Vífill Ingvarsson
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Fyrstu tölur eru áætlaðar að vera tilkynntar um sjöleytið í kvöld, klukkustund eftir lokun kjörstaða.
580 manns hafa kosið það sem af er degi, utankjörfundaratkvæði eru ekki með í þeim tölum.
Mikillar ólgu gætti innan flokksins í aðdraganda prófkjörsins. Deilt var um hvort ætti að hafa leiðtogaprófkjör og uppstillingu á restina af listanum eða prófkjör.