Agnar Bragi Bragason hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Guðna Ágústssonar, formanns Framsóknarflokksins. Þetta kemur fram á vef Félags ungra framsóknarmanna.

Agnar Bragi hefur lokið prófi í stjórnmálafræði og alþjóðasamskiptum frá HÍ og er við það að ljúka lögfræðiprófi frá sama skóla, að því er fram kemur á vefnum.

Hann hefur aðsetur á skrifstofu þingflokks framsóknarmanna á Alþingi.