Agnar Hansson, bankastjóri Icebank segir bankann nýlega hafa lokið endurfjármögnun erlendra langtímalána ársins 2008 á góðum kjörum. Hann segir í tilkynningu að lausafjárstöðu bankans vera góða og bankinn hafi nægt laust fé til næstu 12 mánaða.

„Ég tel að Icebank sé kominn yfir erfiðasta hjallann og við horfum björtum augum til framtíðar. Annar ársfjórðungur hefur farið vel af stað og framtíðarafkomuhorfur eru góðar,“ segir Agnar.

Um afkomu bankans á fyrsta ársfjórðungi þessa árs sem birt var í segir Agnar:

„Það var á brattann að sækja á fyrsta ársfjórðungi líkt og á síðasta ársfjórðungi 2007 og ljóst að afkoman er ekki góð. Þó er ánægjulegt hversu mikið hreinar vaxtatekjur jukust en það sýnir betur en margt annað að grunnrekstur bankans stendur styrkum fótum. Vaxtatekjurnar einar og sér standa undir öllum rekstrarkostnaði og gott betur. Icebank hefur ávallt lagt áherslu á hagkvæmni og skilvirkni í rekstri og við erum því vel í stakk búin til að takast á við krefjandi markaðsaðstæður.“

Þá kemur einnig fram að Icebank hefur áfram minnkað stöðu sína í Exista og nemur eign bankans í félaginu nú 111 milljónum hluta. Þessi breyting hefur áhrif til hækkunar á CAD eiginfjárgrunni bankans.

Agnar segir gaumgæfilega skoðun hefur farið fram á eignum bankans.

„Í kjölfarið var gerð sú varúðarráðstöfun að færa niður kröfur að fjárhæð 2.278 m.kr. Þetta er einkum gert vegna verðrýrnunar trygginga í formi hlutabréfa. Það er trú mín að með þessari aðgerð mæti bankinn vel þeim lækkunum sem hafa orðið á mörkuðum,“ segir Agnar Hansson, bankastjóri Icebank.