Agnar Daníelsson hefur verið ráðinn sölustjóri atvinnubíla hjá Bílaumboðinu Öskju. Agnar hefur rúmlega 20 ára starfsreynslu hjá hópferðarfyrirtækjum en hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri Kynnisferða ehf. og þar áður fyrir SBA-Norðurleið.

Í tilkynningu segir að Bílaumboðið Askja sé að auka áherslur sínar í sölu og þjónustu við atvinnubíla og ekki síst við atvinnubíla tengda ferðaþjónustu. Starfsreynsla Agnars sé því góð viðbót við öfluga söludeild atvinnubíla hjá Öskju.