© Aðsend mynd (AÐSEND)

Agnes Hlíf Andrésdóttir og Eðvarð Atli Birgisson hafa verið ráðinn til starfa hjá H:N Markaðssamskiptum.

Fram kemur í tilkynningu að Agnes Hlíf er með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum með áherslu á markaðsfræði frá Háskólanum á Bifröst. Hún hefur tíu ára reynslu af markaðsstörfum og birtingamálum en hefur búið í Osló síðustu tvö ár.

© Aðsend mynd (AÐSEND)

Eðvarð Atli, eða Ebbi eins og hann er kallaður, er Breiðhyltingur úr Grafarvogi. Hann er nýkominn heim eftir sex ára dvöl í Kaupmannahöfn þar sem hann lagði stund á margmiðlunarhönnun við Köbenshavn erhvervsakademi. Hann starfaði um skeið hjá Tjarnargötunni sem framleiðandi og hönnuður.