Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir í nýjustu skýrslu sinni um íslensk efnahagsmál að komið hafi verið í veg fyrir flóð framboðs íbúðarhúsnæðis hér á landi með frystingu í fjárnámi í íbúðarhúnæði, skuldbreytingu íbúðalána og aukinni notkun markaskiptasamninga.

Segir sjóðurinn að með þessu hafi verið komið í veg fyrir hættulega niðursveiflu íbúðaverðs.

Um þetta er fjallað í Morgunkorni Íslandsbanka en þar segir að þrátt fyrir þessar aðgerðir hafi íbúðaverð lækkað um 12-13% frá því að það náði hámarki að nafnviði í janúar 2008 og að raunvirði hefur íbúðaverð lækkað um þriðjung frá hæstu stöðu í október 2007.

„Ljóst er að án ofangreindra aðgerða hefði verðlækkunin orðið meiri og í leiðinni eiginfjárstaða heimilanna lakari, en reiknað er með að um fimmtungur þeirra sé í neikvæðri eiginfjárstöðu í húsnæði um þessar mundir og að þegar botni kreppunnar verði náð geti það hlutfall verið komið í um þriðjung,“ segir í Morgunkorni.

Þá kemur fram að í efnahagsspá Seðlabankans sem birt var í síðustu viku er því spáð að íbúðaverð muni halda áfram að lækka á næstu misserum. Þannig reikni bankinn með því að íbúðaverð muni að raunvirði lækka um nær 50% í þessari kreppu og að nafnvirði muni verðið lækka um ríflega 27% og ná botni á fyrsta fjórðungi 2011.

„Reiknar bankinn með því að íbúðaverð muni þá verða nær 14% undir langtímameðaltali sem merkir að þegar litið er lengra fram í tímann þá gæti leiðrétting átt sér stað til hækkunar umfram þá hækkun sem eðlilegt er að húsnæðisverð taki til lengri tíma,“ segir í Morgunkorni.

Greining Íslandsbanka tekur þó fram að veltan á íbúðamarkaði hefur verið mjög lítil og hlutfall makaskipta hátt. Mælivandi sé því þegar verðþróun íbúðarhúsnæðis er metin um þessar mundir þar sem viðskiptin eru svo fátíð. Það geri það vandasamara að fylgjast með og túlka verðþróun íbúðarhúsnæðis um þessar mundir. Því segir Greining Íslandsbanka að fara þurfi varlega í túlkun verðsveiflna á milli einstakra mánaða.