Það er svigrúm til að bæta gæði við aðlögun ríkisfjármála samkvæmt sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi. Hverfa ætti frá því að treysta á einskiptisaðgerðir á borð við eignasölu og háum arðgreiðslum ríkisfyrirtækja.
Í yfirlýsingu sendinefndarinnar segir að rannsóknir sýnir að umtalsverðum sparnaði megi ná fram í heilbrigðis- og menntakerfinu án þess að það stefni niðurstöðum þar í hættu. Á fundi nefndarinnar sem haldinn var á Kjarvalsstöðum í morgun kom fram að auka mætti afköst í heilbrigðis- og menntamálum og ná fram aukinni hagkvæmni. Þessa niðurstöðu mætti fá fram með því að draga úr fjárveitingum. Um þetta hefur þegar verið rætt við núverandi stjórnvöld og tónar þetta við áætlanir hennar.
Þá segir í yfirlýsingu nefndarinnar að huga þurfi að því að lækka niðurgreiðslur til landbúnaðar og að gera tekjutilfærslur í félagslega kerfinu hnitmiðari.