Ef kröfuhafar og stofnfjáreigendur Byrs og Sparisjóðsins í Keflavík (SpKef) taka ekki tilboði íslenska ríkið hefur lagt fyrir þá mun verða gripið til aðgerða sem „vernda innstæðueigendur að fullu.“ Hvor leiðin sem verður farin þá á endurskipulagningarferli sparisjóða að ljúka fyrir lok maímánaðar.

Þetta kemur fram í skýrslu starfsmanna Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um aðra endurskoðun á áætlun Íslands hjá sjóðnum. Ekki er útskýrt frekar hvað felst í verndun innstæðueigenda en af orðalagi skýrslunnar þá virðist sem fyrirliggjandi tilboð íslenska ríkisins sé lokatilboð til kröfuhafa og stofnfjáreigenda.

Kröfuhafar tapa 58% og stofnfé skrifað niður um 96%

Viðskiptablaðið greindi frá því í dag að kröfuhöfum Byrs haf borist tilboð frá íslenska ríkinu sem þeir verða að samþykkja eigi ríkið að leggja sparisjóðnum til þá tæpa ellefu milljarða króna sem hann hefur óskað eftir.

Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins felur tilboðið í sér að kröfuhafar Byrs muni fá 42% endurheimtur í fyllingu tímans en að stofnfé verði skrifað niður um 96%. Heimildir blaðsins herma að tilboð til kröfuhafa og stofnfjáreigenda SpKef sé í besta falli á svipuðum nótum.

Endurskipulagning íslenska sparisjóðakerfisins hefur staðið yfir nánast frá bankahruni, en hefur dregist mjög á langinn vegna erfiðleika við að klára mál tengd Byr og SpKef. Þeir tveir sjóðir eiga að mynda hryggjastykki í hinu nýja sparisjóðakerfi. Til að sjóðirnir geti uppfyllt kröfur um eigið fé er nauðsynlegt að ríkið leggi þeim til eigið fé, en það skuldbatt sig til þess í neyðarlögunum. Í kjölfarið verður ríkið langstærsti eigandi sjóðanna.

Tímabæra ákvörðun til að vernda innstæðueigendur að fullu

Stór hluti innlendra kröfuhafa Byrs hefur þegar samþykkt tilboðið en það stendur mjög í erlendum fjármálafyrirtækjum sem eiga kröfur á Byr. Í skýrslu starfsmanna AGS segir að ef ekki náist niðurstaða í málið í þeirri samningslotu sem nú stendur yfir þurfi að taka „tímabæra ákvörðun vegna þessara veiku stofnanna í gegnum gangvirki sem verndar innstæðueigendur að fullu.“  _____________________________

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Áskrifendur geta lesið blaðið á pdf-formi hér á vefnum og þeir sem ekki hafa lykilorð geta sótt um það hér .