Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst lítillega saman á milli vikna í síðustu viku, þó hafa verði í huga að aðeins voru þrír virkir dagar í vikunni. Þannig nam veltan  1.307 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, samanborið við 1.565 milljóna króna veltu í vikunni á undan og dróst því saman um 16% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta lækkar á milli vikna og nemur nú 1.455 milljónum króna, samanborið við 1.518 milljónir í vikunni á undan. Fjögurra vikna meðalvelta hefur þó hækkað um 40 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú hækkað um 10% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 43% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta hækkar einnig á milli vikna, eða um 9 milljónir króna, og nemur 1.335 milljónum króna.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.422 milljónir króna á viku. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 1.660 milljónum króna og hefur því dregist saman um 14% á milli ára. Þá má geta þess að um miðjan janúar í fyrra fór 12 mánaða meðalvelta í fyrsta skipti undir 2 milljarða frá því febrúar 2003.

Í síðustu viku:

Alls var 44 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 57 samninga í vikunni þar á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 45 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning hækkar lítillega á milli vikna og nam í vikunni 29,7 milljónum króna, samanborið við 27,5 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 30,5  milljónum króna.