Ágúst Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar Group, fékk um 9,3 milljónir króna á mánuði í laun í fyrra. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Á sama tíma tapaði Bakkavör Group um 2,5 milljörðum króna.

Laun og starfstengdar greiðslur Ágústs voru þær sömu og á árinu 2009 en hann fékk ekki jafn ríflegar lífeyrissjóðsgreiðslur á því ári samkvæmt Fréttablaðinu. Þá skilaði Bakkavör Group um 2,2 milljarða króna tapi. Ágúst hefur þó tekið á sig ríflega launalækkun frá árinu 2008 þegar hann var samtals með um 182,2 milljónir króna í laun og starfstengdar greiðslur. Á því ári tapaði Bakkavör Group um 28,4 milljörðum króna. Ágúst fékk því um 393,3 milljónir króna í laun, starfstengdar greiðslur og lífeyrissjóðsgreiðslur frá byrjun árs 2008 og út árið 2010. Á sama tíma tapaði Bakkavör Group um 33 milljörðum króna á gengi dagsins í dag.

Bakkavör Group gerði nauðasamning við kröfuhafa sína í mars 2010. Samkvæmt honum ætlaði félagið að endurgreiða þeim um 92 milljarða króna fram til loka júnímánaðar 2014. Gengi það eftir myndu bræðurnir Ágúst og Lýður halda 25% eignarhlut í félaginu sem þeir stofnuðu árið 1986. Ef Bakkavör tækist ekki að greiða skuldina til baka myndu kröfuhafar hins vegar breyta kröfum sínum í hlutafé og taka yfir eign þeirra.

Rekstur Bakkavarar hefur gengið mun lakar en nauðasamningurinn gerði ráð fyrir. Engar greiðslur hafa enn sem komið er verið inntar af hendi til kröfuhafanna. Heimildir Fréttablaðsins herma að þeir telji litlar sem engar líkur á því að skuld þeirra verði greidd á tímabilinu sem nauðasamningurinn tekur til. Því muni þeir breyta kröfum sínum í hlutafé þegar þar að kemur.