Ágúst Hrafnkelsson hefur óskað eftir því við forstjóra Fjármálaeftirlitsins að vera leystur frá störfum í skilanefnd Glitnis banka hf.

Ástæðan er sú að hann sú að hann hefur ráðið sig til starfa sem forstöðumaður innri endurskoðunar Nýja Glitnis.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Fjármálaráðuneytið hefur fallist á beiðni Ágústs og hefur skipað Kristján Óskarsson í hans stað.

Ráðning lögmanns fyrir skilanefnd

Þá kemur einnig fram að skilanefnd hefur samþykkt að ráða Pál Eiríksson til starfa fyrir skilanefnd frá og með 24. október 2008.

Páll starfaði áður hjá gamla Glitni.