H. Ágúst Jóhannesson, endurskoðandi hjá KPMG, er nýr formaður Félags löggiltra endurskoðenda en hann var kosinn á aðalfundi félagsins á föstudaginn síðastliðinn.

Ágúst er fæddur 21. febrúar 1960 í Reykjavík, hann fékk löggildingu sem endurskoðandi árið 1999. Hann hefur  starfað hjá BDO Endurskoðun ehf, Ernst & Young og sem löggiltur endurskoðandi hjá KPMG frá 1999 og meðeigandi frá 2001. Ágúst hefur gegnt embætti varaformanns hjá félaginu síðastliðin tvö starfsár.

Í tilkynningu segir að félagið óski honum til hamingju með stöðuna og býður hann velkominn til starfa, um leið og Margréti Pétursdóttur, fráfarandi formanni eru færðar þakkir fyrir gott framlag hennar til félagins undanfarin ár.

Þá mun Ágúst einnig gegna formennsku í Norræna endurskoðendasambandinu en Ísland tók við formennsku sambandsins í ágúst.

Bryndís Björk Guðjónsdóttir endurskoðandi hjá PwC var einnig kjörin nýr varaformaður félagsins.  Aðrir í stjórn félagsins eru Guðni Þór Gunnarsson, Sif Einarsdóttir og Anna Kristín Traustadóttir