Ágústa Hrund Steinarsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Wow air. Hún hefur síðastliðin sex ár verið forstöðumaður markaðs- og kynningarmála Íslandspósts en tekur við nýja starfinu eftir hádegi á föstudag. Ágústa sest þar í sætið sem Guðmundur Arnar Guðmundsson stóð upp úr þegar hann hætti í apríl. Guðmundur er nú markaðsstjóri Nova. Inga Birna Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Wow air, hefur verið með mál Guðmundar á sinni könnu síðan hann hætti.

Fram kemur í tilkynningu að Ágústa er með B.Sc í alþjóðamarkaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún starfaði sem vörumerkjastjóri hjá Halldóri Jónssyni heildverslun frá árinu 2003 til 2006.

Ágústa situr í stjórn ÍMARK, samtökum markaðsfólks á Íslandi.