Ágústa Katrín Auðunsdóttir hefur tekið við stöðu forstöðumanns fjármálasviðs Eignaumsjónar. Hún hefur starfað sem sérfræðingur á fjármálasviði Eignaumsjónar sl. tvö ár og er því sögð öllum hnútum kunnug við að leiða fjármálasvið félagsins, uppbyggingu þess og þróun.

Ágústa er með MCF meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík og BSc gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á reikningshald. Áður en hún réðst til Eignaumsjónar sinnti hún sérfræðistörfum á fjármálasviði hjá Nordic Visitor og þar áður var hún bókhaldsfulltrúi hjá Lyfju.

Fjármálasvið er eitt þriggja meginstarfssviða Eignaumsjónar hf., sem hefur sérhæft sig í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög með það að markmiði að gera rekstur fasteigna bæði markvissari og ódýrari, auka upplýsingaflæði til eigenda og hússtjórna og auðvelda störf þeirra.