Phillip Booth, prófessor í tryggingafræðum og áhættustýringu, hélt í gær fyrirlestur um orsakir fjármálakreppunnar. Fundurinn var á vegum Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands og Rannsóknarseturs um nýsköpun og hagvöxt.

Booth segist ekki vera hlynntur því að viðskiptabankar og fjárfestingabankar verði aðskildir.