Áhættustýringu VÍS hefur verið skipt upp til að aðgreina verkefni og hlutverk tryggingastærðfræðings  annars vegar og áhættustýringar hins vegar. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að þetta er í tengslum við innleiðingu félagsins á nýrri löggjöf um vátryggingafélög sem taka á gildi 1. janúar 2016.

Ragnar Þ. Ragnarsson verður forstöðumaður tryggingastærðfræðistofu og Þórir Óskarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður áhættustýringar. Báðir hafa starfað hjá félaginu um árabil og sinnt þessum starfssviðum sameiginlega.