Í dag eru 25 dagar í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer laugardaginn 23. ágúst 2014. Áheitasöfnun fer fram á vefnum hlaupastyrkur.is og gengur vel, að því er fram kemur í frétt á vef Íslandsbanka . Þegar hafa safnast tæplega 11,4 milljónir til góðra málefna sem er um 10% hærri upphæð en á sama tíma í fyrra.

Áheitavefurinn hlaupastyrkur.is var opnaður sumarið 2010. Á hverju ári hefur verið slegið met í áheitasöfnun. Í fyrra söfnuðust 72,5 milljónir og var það um 58% hækkun milli ára.