Í lok þessa árs hefst áætlunarflug WOW air til Nýju-Delí í Indlandi og verður þetta fyrsta beina flugið héðan til Asíu. Þetta kemur fram á vef Túrista .

Í flugið mun WOW air notast við nýjar Airbus 330 breiðþotur og líkt og ekki er útilokað að um borð verði indverskar áhafnir að störfum.

Aðspurð um hvort ákvörðun hafi verið tekin um þessi mál þá segir Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW, í viðtali við Túrista að félagið muni senda frá sér nánari upplýsingar um þessi mál á næstu vikum.