Áhætta Straums fjárfestingabanka [ STRB ] af kröfum á hendur XL nemur um 45 milljónum evra (5,8 milljarðar króna). Á þessu stigi er ekki ljóst að hvaða marki þetta fé verður endurheimt. Þótt fjárhæðin sem um ræðir sé ekki léttvæg er hún lág með hliðsjón af eigin fé Straums, sem var 1,5 milljarðar evra í lok annars ársfjórðungs, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

XL Leisure Group hefur óskað eftir greiðslustöðvun eftir að reynt hafði verið til þrautar um alllangt skeið að koma við fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins.