Skuldatryggingarálag á evruskuldir Ríkissjóðs Íslands hefur ekki verið lægra frá því í júní 2008, ef tekið er mið af meðaltali mánaðar. Álagið hefur verið nokkuð stöðugt upp á síðkasti og stóð skuldatryggingarálag til fimm ára í 269 punktum (2,69%) í lok dags í gær.

Áhættuálagið hefur að meðaltali verið 270 punktar það sem af er desember, sem er 6 punktum lægra en það var að meðaltali mánuðinn á undan.

Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Segir að álagið í desember nú sé 143 punktum lægra en það var að meðaltali í desember 2009.

Annað ástand í Evrópu

„Ekki er hægt að segja hið sama um þróunina á skuldatryggingarálagi almennt á meðal annarra ríkja í Vestur Evrópu. Hefur álagið á flest þessi ríki verið að hækka og á mörgum hverjum hefur það aldrei verið jafn hátt og þennan mánuðinn. Þetta á við skuldatryggingarálagið á Grikkland sem hefur að meðaltali verið 929 punktar það sem af er þessum mánuði og er sömu sögu að segja um álagið á Spán (319 punktar), Ítalíu (208 punktar), Belgíu (195 punktar) og svo Frakkland (98 punktar). Þetta hefur gert það að verkum að meðaláhættuálagið á ríki Vestur Evrópu hefur ekki verið jafn hátt að jafnaði og einmitt þennan mánuðinn, en það hefur að meðaltali verið 204 punktar og því ekki langt frá álaginu á skuldir íslenska ríkisins,“ segir í Morgunkorni.