Áhættugreining Fjármálaeftirlitsins á öllum lífeyrissjóðum landsins, í kjölfar bankahrunsins, leiddi til rannsóknar á lífeyrissjóðunum fimm sem nú eru í rannsókn hjá embætti sérstaks saksóknara.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá FME.

„Aðdragandi þessa máls er að í kjölfar yfirtöku ríkisins á viðskiptabönkunum í byrjun október sl. gerði Fjármálaeftirlitið áhættugreiningu á öllum lífeyrissjóðum í landinu, til að meta hugsanlegt tjón þeirra af völdum bankahrunsins," segir í tilkynningunni.

„Þessi ákveðna áhættugreining sýndi að þörf væri á að taka til sérstakrar athugunar samsetningu eigna nokkurra lífeyrissjóða og óskaði Fjármálaeftirlitið eftir ítarlegum upplýsingum um eignir þessara sjóða í kjölfarið. Sú athugun náði meðal annars til fjölmargra lífeyrissjóða sem eru í vörslu og eignastýringu allra viðskiptabankanna."

Að þessari athugun lokinni þótti ekki ástæða til að efna til sérstakrar rannsóknar á fjárfestingum lífeyrissjóðanna vegna fyrri hluta ársins 2008 „nema þeirra sjóða sem voru í eignastýringu Landsbankans, en þar er um að ræða Íslenska lífeyrissjóðinn, Kjöl lífeyrissjóð, Lífeyrissjóð Tannlæknafélags Íslands, Eftirlaunasjóð FÍA og Lífeyrissjóð Eimskipafélags Íslands (deild II)."

Allir þessir lífeyrissjóðir hafa gert sérstaka samninga við Landsbankann um rekstur og eignastýringu sjóðanna, sem auk þess fela í sér að bankinn skipar framkvæmdastjóra og sjóðsstjóra hvers lífeyrissjóðs fyrir sig og sér um innri endurskoðun sjóðanna.