Eflaust hafa einhverjir séð eftir því að hafa ekki mætt á aðalfund Landsbankans í gær í ljósi þess hve mikla umræðu ræða fráfarandi bankaráðsformanns, Gunnars Helga Hálfdanarsonar, hefur fengið. Sagði hann m.a. að á síðasta starfsári fráfarandi bankaráðs hafi inngrip Bankasýslunnar inn í störf ráðsins og á starfsvið þess aukist frá því sem var. Varaði hann við þessari þróun og sagði að hætta væri á að alger viðskilnaður yrði milli valda og ábyrgðar bankaráðsins.
Mæting var þó góð, þótt Silfurbergssalur Hörpu hafi ekki verið sneysafullur.