Í samantekt Dohop á stundvísi flugfélaga kemur fram að Air Berlin sé stundvísasta flugfélagið sem flaug frá Keflavíkurflugvelli í ágúst.

Dohop rýndi í stundvísi þeirra flugfélaga sem eru með mest af áætlunarflugi frá Keflavíkurflugvelli í ágúst. Þetta er annan mánuðinn í röð sem Air Berlin er stundvísast. Um 71% áætlaðra flugferða Air Berlin voru á réttum tíma.

SAS og easyJet voru álíka stundvís og þýska flugfélagið og áætlaðar flugferðir þeirra voru á réttum tíma í um 70% tilvika.

Íslensku flugfélögin Icelandair og WOWair voru í 4. og 5. sæti þegar allt flug er tekið saman, en er það nálægt meðalárangri í stundvísi.

Bæting frá því í júlí

Bandaríska flugfélagið Delta lenti í hremmingum í ágúst og voru einungis um 50% fluga félagsins á réttum tíma.

Flugfélögin eru þó að meðaltali stundvísari í ágúst en í júlí. Í heildina var 65% alls flugs flugfélaganna á réttum tíma, samanborið 54% í júlí.