Kanadíska flugfélagið Air Canada kemur til með að fljúga beint til Íslands í sumar. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu PR Newswire .

Flogið verður fjórum sinnum í viku frá Toronto og þrisvar sinnum á viku frá Montreal, ef að viðeigandi stjórnvöld landanna tveggja samþykkja þessa tilhögun kanadíska flugfélagsins. Air Canada kemur til með að selja flug, fram og til baka á 698 dollara, sem kynningargjald.

„Ísland er upprennandi og spennandi áfangastaður, sem fer vaxandi í vinsældum. [..] Okkur hlakkar til að bjóða upp á ferðir til land íss og elds í sumar,“ er haft eftir Benjamin Smith, hjá Air Canada.