Air France flugfélagið hefur er síðasta flugfélagið til að bregðast við hækkandi eldsneytisverði. Félagið segist hafa skorið niður spá um aukningu í starfsemi sinni og býst nú við að umfang hennar vaxi um 2% á þessu ári. Ekki fékkst gefið upp hversu miklum vexti búist var við í fyrri spá.

Air France er meðal stærstu flugfélaga í heimi. Farþegafjöldi félagsins jókst í júní um 1,3% frá fyrri mánuði, en sætanýting félagsins minnkaði þó um rúmt prósent. Er það vegna þess að fjöldi ferða jókst í mánuðinum.