AirAsia hefur samþykkt að kaupa hundrað A320 þotur frá Airbus til þess að auka við starfsemi flugfélagsins í Suðaustur Asíu, en flugfélagið hefur þegar pantað hundrað þotur, segir í frétt Dow Jones.
Listaverð pöntunarinnar er um 470 milljarðar króna, en flugvélaframleiðendur gefa vanalega stóra afslætti þegar um stórar pantanir er að ræða.
Byrjað verður að afhenda þoturnar árið 2012.