Airbus hyggst selja nokkrar af verksmiðjum sínum. Ef af samningum verður verða verksmiðjurnar selda GKN í Bretlandi, Latecoere í Frakklandi og OHB í Þýskalandi. Salan er liður í að lækka kostnað með því að láta undirverktaka sjá um hluta framleiðslunnar. Greint var frá þessu á fréttavef Bloomberg.