Flugfélagið Emirates, stærst flugfélaga Arabaríkjanna, og Airbus, stærsti framleiðandi farþegaflugvéla í heimi, hafa gert með sér samning um framleiðslu og kaup á sjötíu A350 og ellefu A380 farþegaþotum. Emerates hefur einnig tryggt sér forkaupsrétt á fimmtíu A350 þotum.

Emirate valdi A350 farþegaþoturnar fram yfir Boeing 787 þrátt fyrir að þær séu ódýrari. A350 farþegaþotan tekur 300 manns í sæti.