Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus afhenti samtals 530 vélar í fyrra á meðan bandaríski keppinauturinn Boeing afhent 477 vélar.

Frá þessu er greint á vef Flightglobal fréttavefsins. Sem fyrr afhenti Airbus flest eintök af vinsælustu línu sinni, A320.

Hjá Boeing jókst fjöldi afhentra véla þó um 15 á milli ára þrátt fyrir tafir á afhendingu Boeing 747-8 og 787 véla.