Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus segist reikna með fækkun á pöntunum nýrra flugvéla á þessu ári miðað við árið í fyrra.

Félagið segist reikna með 700 pöntunum um nýsmíði á þessu ári en þér voru 1341 í fyrra.

Sölustjóri Airbus sagði að þrátt fyrir þetta væri nóg að gera hjá fyrirtækinu og að enn ætti það eftir að afgreiða 3600 pantanir.