Tveir menn hafa verið ákærðir fyrir að hafa reynt að kúga fé af sælgætisgerðinni Nóa Síríus. Hótunin barst í byrjun árs 2012.

Forsvarsmenn Nóa Síríus segja að þótt ljóst hefði verið frá upphafi að hótunin hefði á sér viðvaningslegt yfirbragð þá hafi fyrirtækið tekið hana mjög alvarlega og gert lögreglunni strax viðvart.

Lögreglan hafi brugðist hratt við og aldrei verið nein hætta á ferðum.