Norska fyrirtækið Aker Exploration AS. hefur sent Orkustofnun bréf þar sem félagið dregur til baka umsókn sína um rannsóknir á Drekasvæðinu.

Í bréfinu segir að vegna breyttrar stefnumörkunar hjá fyrirtækinu hafi Aker Exploration AS ákveðið að draga til baka umsókn sína um sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolefna samkvæmt 1. útboði á Drekasvæðinu. Þann 15. maí sl. rann út frestur til að sækja um sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolefnis á Drekasvæði. Orkustofnun bárust þá umsóknir frá:

• Aker Exploration • Sagex Petroleum og Lindir Exploration

Umsókn Sagex Petroleum og Lindir Exploration er enn í vinnslu. Auk þess veitti Orkustofnun þann 5. júní sl. bandaríska fyrirtækinu ION GX Technology leyfi til leitar að kolefni á norðanverðu Drekasvæðinu segir í tilkynningu Orkustofnunar.