Finnski bankinn Aktia hefur skrifað undir viljayfirlýsingu um kaup á eignastýringardeild Kaupþings í Finnlandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Aktia.

Jussi Laitinen, forstjóri Aktia segir í tilkynningu að kaup bankans á eignastýringardeild Kaupþings muni styrkja innvið bankans.

Hann segir Kaupþing hafa gott orðspor í Finnlandi auk þess að hafa haft góða markaðsstöðu.

Kaupin eru háð samþykki eftirlitsstofnana.