Akureyrarbær hefur ákveðið að opna bókhald sitt og gera það aðgengilegt á heimasíðunni Akureyri.is. Þar verður framvegis hægt að skoða útgjaldaliði bæjarins, hvaða greiðslur hafa verið inntar af hendi og til hverra, hver kostnaður er og hefur verið við einstaka málaflokka, verkefni og deildir. Einnig verður hægt að bera saman kostnaðarliði á milli ára á aðgengilegan og myndrænan hátt að því er kemur fram í frétt á vef bæjarins.

„Þetta er mjög jákvætt skref í að efla gagnsæi og aðgangi að opinberum upplýsingum. Þróun í hugbúnaði hefur í dag einnig hjálpað okkur að birta þessar upplýsingar með auðveldari hætti en áður. Opnun bókhaldsins er jafnframt enn eitt skrefið í rafrænni stjórnsýslu hjá sveitarfélaginu og sú þróun mun halda áfram,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri.