Nýtt flugfélagfélag um millilandaflug á Akureyri, sem stofnað var á dögunum, stefnir á að fljúga jómfrúarflug þann 2. júní næstkomandi. Í upphafi verður flogið til Bretlands, Danmerkur og Spánar en sala hefst á næstu vikum. Félagið hefur fengið nafnið Niceair sem vísar til norður Íslands (e. North Iceland).

Niceair hefur fest sér Airbus A319 flugvél með 150 sætum en þessi tegund flugvélar er langdræg og sögð henta vel fyrir aðstæður á Akureyri ásamt því að hafa gott fraktrými.

„Forsendur fyrir flugi til og frá Akureyri hafa breyst verulega frá því sem áður var en stofnun Niceair kemur í kjölfar tveggja ára rannsóknarvinnu í samvinnu við erlenda og innlenda aðila. Ætlun félagsins er að festa í sessi áætlunarflug allt árið á erlenda áfangastaði frá Akureyrarflugvelli. Þetta mun í senn bæta lífsskilyrði einstaklinga á svæðinu, bæta aðgengi erlendra ferðamanna að Norðurlandi, og síðast en ekki síst stóreykst samkeppnishæfni fyrirtækja á svæðinu,“ segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson , framkvæmdastjóri Niceair.

Fyrst um sinn verður flugrekstrarleyfið í höndum evrópsks flugrekanda. Félagið áætlar að um 20 störf muni skapast á Akureyri. Í fréttatilkynningu segir að áhafnir verði bæði innlendar og erlendar, og launakjör sambærileg þeim sem gerast á íslenskum vinnumarkaði. Þjálfun áhafna mun fara fram bæði á Íslandi og erlendis.

„Við erum vel fjármagnað félag með öfluga bakhjarla. Það er sérstaklega ánægjulegt hversu fjölbreytt breiðsíða fyrirtækja, einstaklinga og stofnana á Norðurlandi hefur flykkt sér að baki félaginu, en KEA, Höldur, Kaldbakur, Norlandair, Armar, Ferðaskrifstofa Akureyrar, Norðurböð,  brugghúsið Kaldi, kælismiðjan Frost, Finnur ehf. og fleiri félög eru meðal hluthafa. Enginn hluthafa er áberandi stór og enginn er yfir 8%. Á næstu misserum verður almenningi og fyrirtækjum boðið að eignast hlutdeild í félaginu“, segir Þorvaldur Lúðvík.

Áætlunarflug allt árið um kring mun þjóna farþegum bæði á Norðurlandi og Austurlandi sem hingað til hafa þurft að fara langan veg til Keflavíkur til að komast í millilandaflug. Flug Niceair til Akureyrar er líklegt til að styðja við heilsársþjónustu um allt land sem hefur lengi verið markmið ferðaþjónustunnar en rannsóknir frá Ferðamálastofu hafa sýnt fram á að 70% endurkomufarþega til Íslands vilja komast beint út á land.

„Við erum gríðarlega ánægð að fá okkar eigið flugfélag á Akureyrarflugvöll. Hér í norðrinu er ört vaxandi borgarsamfélag sem verður að hafa áætlunarflug á milli landa á helstu áfangastaði fyrir fólk og frakt. Það hefur verið sameiginlegt átak hjá mörgum hagaðilum hér fyrir norðan um langt skeið að byggja upp áfangastaðinn og þetta er afar jákvætt og stórt skref sem við sjáum hér stigið“, segir Hjördís Þórhallsdóttir , flugvallarstjóri Akureyrarflugvallar.