Ákvörðun Neytendastofu um innköllun á snjallúrum hefur nú verið staðfest. Frá þessu er greint á vef Neytendastofu .

Neytendastofa tók ákvörðun gagnvart Hópkaup í desember 2018 vegna ENOX Safe-Kid-One krakka snjallúra. Komst Neytendastofa að þeirri niðurstöður að alvarlegir öryggisgallar væru á snjallúrinu. Var Hópkaup gert að innkalla úrin frá kaupendum auk þess sem sala ENOX Safe-Kid-One snjallúra var bönnuð.

Enox Production Services GmbH kærði ákvörðun Neytendastofu til áfrýjunarnefndar neytendamála sem nú hefur staðfest  ákvörðun Neytendastofu.