Álag á tíu ára ítölsk skuldabréf hækkaði um fimm punkta í morgun. Er nú bilið milli þeirra og 10 ára þýskra bréfa 297 punktar. Álag á spænsk skuldabréf hefur hækkað um einn punkt.

Þessar hækkanir eru taldar til komnar vegna ótta fjárfesta við að björgunaraðgerðir Evruríkjanna séu ekki nægar til að koma í veg fyrir að skuldavandamál breiðist yfir í önnur lönd af því er fram kemur í greingarefni IFS.