Álagi verður beitt á nýjan leik á vangreiddan virðisaukaskatt frá og með næsta gjalddaga en sá er 6. apríl næstkomandi. Þetta kemur fram á vef Skattsins.

Frá því að heimsfaraldurinn skall á hefur Skatturinn haft heimild til bráðabirgða til að beita ekki álagi en sú heimild hefur ekki verið framlengd af þinginu. Greiðslur eftir gjalddaga, vegna uppgjörs janúar og febrúar, geta því sætt álagi.