Skuldatryggingarálag á fimm ára skuldabréf ríkissjóðs lækkaði töluvert í dag og stendur nú í 307 punktum ofan á millibankavexti samkvæmt upplýsingum á keldan.is. Í fyrradag hækkaði álagið mikið og fór í 330 punkta sem er hæsta álag ársins til þess. Álagið fór yfir 300 punkta 21. september sl. og hefur haldist þar síðan.