Krónur
Krónur
© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)
Samanlögð álagning almenns tekjuskatts og útsvars nemur 200,9 milljörðum króna og hækkar um 1,4% frá fyrra ári.Tekjuskatts- og útsvarsstofn landsmanna árið 2010 nam 812,4 milljörðum króna og hafði dregist saman um 0,5% frá fyrra ári. Skattstofnsins var aflað af rúmlega 237 þúsund manns og hafði fjölgað um 0,6% í þeim hópi og var orðinn næstum því jafn fjölmennur og við álagningu 2009. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Fjármálaráðuneytinu

Almennur tekjuskattur

Almennur tekjuskattur sem nam 100,6 milljörðum króna var lagður á rúmlega 151 þúsund framteljendur. Af þeirri upphæð fóru 9,4 milljarðar til að greiða útsvar 98 þúsund framteljenda að hluta eða öllu leyti og 445 milljónir króna til að greiða fjármagnstekjuskatt rúmlega 6 þúsund framteljenda að hluta eða öllu leyti. Nú greiða 64% þeirra sem höfðu jákvæðan tekjuskatts- og útsvarsstofn tekjuskatt til ríkissjóðs. Þetta hlutfall hefur ekki verið lægra síðan 2002.

Útsvar

Útsvarstekjur til sveitarfélaga nema alls 109,7 milljörðum króna og eru nær óbreyttar milli ára. Þær reiknast af öllum skattstofninum en ónýttur persónuafsláttur greiðir skattinn að hluta.

Fjöldi framteljenda

Á skattgrunnskrá voru 260.764 framteljendur. Af þeim sættu 10.190 áætlunum eða 3,91% af skattgrunnskrá. Stærsti hluti álagðra gjalda hefur þegar verið innheimtur með staðgreiðslu opinberra gjalda, það á þó ekki við um auðlegðargjald, útvarpsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraða og slysatryggingagjald. Við álagningu fer ennfremur fram uppgjör staðgreiðslu og ákvörðun endurgreiðsla ýmissa bóta.

Fjöldi framteljandi fækkar annað árið í röð. Fækkun framteljenda er minni í ár en var á fyrra ári en flestir voru framteljendur við álagningu 2009, 267.494 og hefur þeim því fækkað um rúmlega 6.700 síðan þá.