Á næstu dögum mun borgarbúum berast tilkynning um breytta álagningu sorphirðugjalda standi sorpílát þeirra lengra en 15 metra frá götu. Gjaldið er um 111 krónur fyrir hverja losun eða 4.000 kónur á ári fyrir sorptunnu sem losuð er á 10 daga fresti (svartar tunnur) og 2.000 krónur á ári fyrir tunnu sem losuð er á 20 daga fresti (grænar og bláar tunnur). Þetta kemur fram á vefsíðu Reykjavíkurborgar.

Reykvíkingar sem eiga þess kost að færa sjálfir sorpílát sín innan 15 metra frá götu á sorplosunardögum geta óskað eftir breyttri þjónustu hjá Reykjavíkurborg.