Alcan á Íslandi (Álverið í Straumsvík) hefur samið við Íslenska aðalverktaka um tilteknar verklegar framkvæmdir við fyrri áfanga straumhækkunarverkefnisins í Straumsvík.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alcan en þetta er fyrsti samningurinn um verklega framkvæmd þessa verkefnis.

Straumhækkunarverkefnið í heild skiptist í tvo hluta. Fyrri hlutinn, sem er hafinn, miðar einkum að því að efla rekstraröryggi álversins og undirbúa straumhækkun, sem stefnt er að á síðari stigum og er megintilgangur seinni hluta verkefnisins.

Fram kemur að fjárhæð samningsins við Íslenska aðalverktaka er 4,1 milljón Bandaríkjadala eða 526 milljónir króna. Allt að 70 starfsmenn fyrirtækisins munu starfa við þessar framkvæmdir, sem hefjast í þessum mánuði.

Um er að ræða byggingarframkvæmdir við aðveitustöð í austurenda álverslóðarinnar sem lúta að tengivirki, rofavirkjum og afriðladeildum, auk þess sem leggja þarf neðanjarðartengingar milli rofavirkis og afriðladeilda.

Þá kemur fram að í heild sinni felur fyrri hluti straumhækkunarverkefnisins í sér fjárfestingu fyrir liðlega 100 milljónir Bandaríkjadala og fellur um þriðjungur fjárhæðarinnar til á Íslandi.

Í samningnum við Íslenska aðalverktaka er einnig kveðið á um frekari verkefni sem eru háð því að ákveðið verði að ráðast í seinni hluta verkefnisins, sjálfa straumhækkunina, sem felur í sér heildarfjárfestingu fyrir yfir 200 milljónir Bandaríkjadala til viðbótar við fyrri hlutann.