Opinber gjöld Alcan í Straumsvík námu á síðasta ári rúmum 14,2 milljónum bandaríkjadala eða 965 milljónum króna.

Vegna frétta í dag um opinber gjöld sendi Alcan í Straumsvík út fréttatilkynningu um málið en þar kemur fram að opinber gjöld Alcan í Straumsvík eru mun hærri en fréttir í dag hafa gefið til kynna.

Samkvæmt sérstökum samningi milli fyrirtækisins og íslenska ríkisisins greiðir Alcan meginþorra sinna skatta beint til fjármálaráðuneytisins og í erlendum gjaldmiðli. Aðeins lítill hluti þeirrar upphæðar kemur þess vegna fram í gögnum skattayfirvalda sem gefa þ.a.l. ekki rétta mynd af opinberum gjöldum fyrirtækisins segir í tilkynningu félagsins.