Útflutningur Alcoa Fjarðaáls á síðasta ári nam tæplega 600 milljónum bandaríkjadala, sem jafngildir um 74 milljörðum íslenskra króna, miðað við núverandi gengi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alcoa en flutt voru út rúmlega 349 þúsund tonn af hreinu áli, álblöndum og álvírum. Verðmæti útflutnings Alcoa Fjarðaáls í fyrra nam því rúmlega 1.4 milljörðum króna á viku, eða rúmlega 200 milljónum króna á dag.   Fram kemur í tilkynningunni að fyrir hvert tonn af áli fengust að meðaltali 1.708 bandaríkjadalir, eða um 210.000 íslenskar krónur miðað við núverandi gengi. Álverð sveiflaðist mjög mikið á árinu. Viðmiðunarverð á markaði (LME) fór niður fyrir 1.300 dali í upphafi árs en í lok ársins var það komið yfir 2.300 dali.   Mesti rafstraumur sem þekkist

Þá kemur fram að á árinu hefur verið unnið að framleiðsluaukningu í álverinu með því að auka rafstrauminn sem leiddur er í gegnum kerin. Straumurinn var um áramótin kominn upp í 380 kílóamper, sem er hæsti straumur sem þekkist í álverum með sambærilega tækni eftir því sem fram kemur í tilkynningunni.

„ Álframleiðsla Alcoa Fjarðaáls var tæplega 3.000 tonnum meiri en áætlanir fyrir árið gerðu ráð fyrir, eða  rúmlega 349 þúsund tonn,“ segir í tilkynningunni.

„Að meðaltali voru framleidd tæp 3 tonn af áli í hverju keri á dag.  Skýringin á aukinni framleiðslu er fyrst og fremst bætt straumnýtni sem er með því besta sem gerist í heiminum.  Alcoa Fjarðaál notaði að jafnaði 554 megavött af raforku á síðasta ári.  Keralína álversins notaði 529 megavött en að auki notaði Fjarðaál 25 megavött í annað en sjálfa álframleiðsluna, þannig að heildarnotkun fyrirtækisins er um 30% allrar raforku sem er framleidd á Íslandi.“   Þá segir að á árinu hafi verið aukin áhersla lögð á framleiðslu verðmætari afurða úr álinu: álvíra og svokallaðra melmisstanga, sem eru litlar 10 kg stangir úr álblöndum. Tæp 215 þúsund tonn voru framleidd af svokölluðum hleifum, tæplega 82 þúsund tonn af T-börrum, rúmlega 44 þúsund  tonn af álvírum, sem eru verðmætasta afurð álversins, rúm 2  þúsund tonn af melmisstöngum og um 7 tonn af öðrum vörum. Stefnt er að því að auka enn framleiðslu á melmisstöngum og álvírum á þessu ári.