© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)
Alcoa á Íslandi tilkynnti hagsmunaaðilum á Norðurlandi í dag að félagið væri hætt áformum um byggingu álvers á Bakka enda ljóst að ekki muni bjóðast nægileg orka á samkeppnishæfu verði til álsversins. Í tilkynningu segir að niðurstaðan komi kjölfar sex ára undirbúningsvinnu við verkefnið, en af hálfu Alcoa hafi legið fyrir frá upphafi að ekki yrði ráðist í svo umfangsmikla fjárfestingu, sem álver er, nema tryggt væri að næg orka fengist til álversins á viðunandi verði til framtíðar.

Annar veruleiki

„Í dag telur Landsvirkjun sig einungis geta tryggt Alcoa helming þeirrar orku sem Alcoa, Landsvirkjun og stjórnvöld gengu út frá í upphafi að fengist til verkefnisins. Auk þess er afhendingartími þeirrar orku sem Alcoa býðst of langur til að af fjárfestingu af þessari stærðargráðu geti orðið. Alcoa stendur því frammi fyrir allt öðrum veruleika en fyrir fimm árum þegar fyrirtækið hóf vinnu við verkefnið í samstarfi við stjórnvöld, sveitarfélög nyrðra og orkufyrirtæki."

Þá segir í tilkynningunni að eftir viðræður við stjórnendur Landsvirkjunar og fulltrúa stjórnvalda hefur Alcoa komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé lengur unnt að réttlæta fjárfestingu af þeirri stærðargráðu sem bygging og rekstur álvers á Bakka er. „Um leið og Alcoa lýsir vonbrigðum yfir því að þær forsendur, sem lagt var upp með í verkefninu árið 2006, séu brostnar þakkar fyrirtækið Norðlendingum af heilum hug samstarfið og stuðninginn við verkefnið."