Alcoa Fjarðaál hefur lýst eftir því að þjónustufyrirtæki sendi tilboð í fjölmarga þætti þjónustu við fyrirtækið þegar það tekur til starfa vorið 2007. Meðal þjónustu sem fyrirtækið þarf á að halda er öryggisgæsla, ræstingar, birgðahald, umhverfisvöktun og snjómokstur, svo fátt eitt sé nefnt.

Efnt verður til fundaraðar dagana 3. til 6. maí til að kynna útboðið.