Áreiðanlegar heimildir herma að allir íslensku jólasveinarnir þrettán búi í Dimmuborgum í Mývatnssveit. Þeir hafa birst þar daglega á milli kl. 13-15 undanfarna daga og munu að sögn halda því áfram fram að jólum. Um helgina hefur frést að þeir muni kíkja í heimsókn í hin ýmsu fyrirtæki sveitarinnar og heilsa upp á sveitunga sína og gesti.

Jólasveinarnir í Dimmuborgum eru liður í svokölluðu snjótöfraverkefni ( e. Snow Magic Mývatn ) sem sett var á laggirnar árið 2004. Markmið þess er að efla ferðaþjónustu Í Mývatnssveit að vetrarlagi með áherslu á sögu og menningu sveitarinnar. Unnið er að verkefninu með stuðningi ýmissa fyrirtækja og opinberra aðila. Meðal annars hefur Skútustaðahreppur stutt við bakið á verkefninu, enda snýst það meðal annars um nýsköpun og vöruþróun á svæðinu. Samfélagssjóður Alcoa hefur nú lagt hönd á plóginn og mun styðja Snjótöfraverkefnið myndarlega næstu tvö árin. Kristján Þ. Halldórsson verkefnisstjóri samfélagsmála Alcoa á Norðurlandi, afhenti Guðrúnu Maríu Valgeirsdóttur, sveitarstjóra Skútustaðahrepps, styrkinn í gær.

Snjótöfraverkefnið er norrænt samstarfsverkefni

Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga, Sorsele í Svíþjóð og Rovaniemi í Finnlandi. Markmið íslenska hlutans er að efla atvinnulíf í Mývatnssveit, sérstaklega yfir vetrartímann, með áherslu á ferðaþjónustu og menningu. Verkefni Snjótöfra í Mývatnssveit eru margvísleg. Unnið hefur verið að skráningu gamalla sagna hjá eldri Mývetningum. Vinnuhópur hefur hannað og skapað fjölbreytileg listaverk í snjó og ís. Mývetningar eru einnig þátttakendur í umfangsmikilli jólasýningu í Rovaniemi í Finnlandi þar sem íslensku jólasveinarnir eru í hávegum hafðir. Í tengslum við það verkefni hafa verið hönnuð og gefin út póstkort með íslensku jólasveinunum. Í tilefni þess að heimkynni jólasveinanna standa gestum opin í desember hafa velunnarar þeirra einnig hannað og saumað á þá nýja og skínandi fallega búninga.

Veffang Snjótöfranna er: www.snowmagic.is